Álver: Merk þáttaskil í atvinnusögu Garðs
„Með álveri við Helguvík verða merk þáttaskil í atvinnusögu Garðs. Mörg vellaunuð störf verða í boði fyrir heimamenn og eftirsóknarverður stöðugleiki í atvinnumálum Suðurnesjamanna næst. Við væntum þess að verkefnið fái áframhaldandi góðan framgang og stuðning“. Þetta segja þeir sex bæjarfulltrúar í Garði sem samþykktu tillöguna um að veita byggingarleyfi fyrir álver í Helguvík. Jafnframt sögðust bæjarfulltrúarnir væntast þess að verkefnið fái áframhaldandi góðan framgang og stuðning.
Í fundargerð segir að bæjarstjórn Sveitarfélagsins Garðs hefur kynnt sér matsskýrslu Norðuráls um fyrirhugað álver í Helguvík með allt að 250 þúsund tonna ársframleiðslu.
Umrædd framkvæmd, að undanskilinni flæðigryfju, er í samræmi við staðfestar skipulagsáætlanir, þ.e. aðalskipulag og deiliskipulag á iðnaðarsvæði við Helguvík innan sveitarfélagsmarka Garðs. Ef flæðigryfju verður valinn staður í Selvík fer bæjarstjórn Garðs fram á að áhrif á bjargfugl verði skoðuð hvað varðar áhrif af byggingu grjótgarðs og aðkomu að gryfjunni og að gerð verði grein fyrir niðurstöðunni í deiliskipulagi.
Vegna ábendinga Skipulagsstofnunar er fram komu í áliti Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum dagsettum 4. október 2007 er eftirfarandi tekið fram:
Hönnunarteymi Reykjaneshafnar og Norðuráls hafa farið ítarlega yfir fyrirhugaðar hafnarframkvæmdir og jarðvegsframkvæmdir. Allt nauðsynlegt efni til grófjöfnunar lóðarinnar verður til reiðu á tilsettum tíma.
Hitaveita Suðurnesja hf. og Norðurál undirrituðu orkusamning fyrir álver í Helguvík 23. apríl 2007. Orkuveita Reykjavíkur og Norðurál undirrituðu orkusamning fyrir álver í Helguvík 7. júní 2007.
Landsnet hf. og Norðurál undirrituðu samning um flutning raforku til álversins í Helguvík þann 3. október 2007. Landsnet hefur síðustu mánuði unnið með sveitarfélögum á Suðurnesjum og víðar að útfærslu flutningsleiða og er sú vinna á lokastigum. Öll sveitarfélög á Suðurnesjum hafa lýst stuðningi við álver í Helguvík.
Samkvæmt upplýsingum Norðuráls í bréfi til Sveitarfélagsins Garðs frá 7. mars 2008, mun fyrirtækið sækja um losunarheimild á árinu, þegar þær verða næst auglýstar til umsóknar og er það í samræmi við ábendingar til Norðuráls frá síðasta ári um að sækja um að nýju þegar verkefnið væri lengra komið.