Bygg
Bygg

Fréttir

Álver í Helguvík: Umhverfismat kynnt á fundum í Reykjanesbæ og Garði
Þriðjudagur 12. júní 2007 kl. 23:03

Álver í Helguvík: Umhverfismat kynnt á fundum í Reykjanesbæ og Garði

Opnir kynningarfundir vegna mats á umhverfisáhrifum vegna álvers í Helguvík og breytinga á aðalskipulagi voru haldnir í Reykjanesbæ og Garði í kvöld.

Þar var mat á umhverfisáhrifum vegna fyrirhugaðs álvers Norðuráls í Helguvík kynnt sem og breytingar á aðalskipulagi í Reykjanesbæ og Garði.

Fundirnir, sem fóru fram í Flösinni á Garðskaga og Flughóteli í Reykjanesbæ, voru nokkuð vel sóttir, en á meðal þeirra sem tóku til máls voru Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suðurnesja, Ragnar Guðmundsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og fjármálasviðs Norðuráls, og fulltrúi verkfræðistofu HRV sem vann umhverfismatið.

 

VF-mynd/Þorgils - Ragnar Guðmundsson í pontu í Flösinni

Bílakjarninn
Bílakjarninn