Alvarlega slösuð
Ekið var á eldri konu um þrjúleytið í gær sem var á leið fótgangandi yfir Njarðarbraut, við Samkaup.Konan slasaðist alvarlega og var hún flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Þá kom í ljós að hún þyrfti að fara í aðgerð og var konan þá flutt á sjúkrahús í Reykjavík í lögreglufylgd vegna mótmælanna á Reykjanesbraut.