Alvarlega slasaður eftir bílveltu
Ökumaður jeppabifreiðar var fluttur á Landsspítala Háskólasjúkrahúss í Fossvogi með höfuðáverka eftir bílveltu á Reykjanesbraut í dag. Beita þurfti klippum til þess að ná ökumanninum út úr bílinum sem var illa farinn eftir veltuna. Ekki er vitað um tildrög slyssins að svo stöddu en lögreglan í Keflavík fer með rannsókn málsins.
VF-myndir/JBÓ