HSS
HSS

Fréttir

Alvarlega skorinn eftir líkamsárás
Mánudagur 5. desember 2005 kl. 09:43

Alvarlega skorinn eftir líkamsárás

Aðfararnótt sunnudags var maður sleginn í höfuðið með glasi á veitingastað í Keflavík. Maðurinn hlaut alvarlega áverka á gagnauga og missti hann mikið blóð. Var maðurinn fluttur með sjúkrabifreið til Reykjavíkur þar sem gert var að sárum hans.

Hann skarst einnig mikið á hendi og þurfti að gangast undir aðgerð vegna þess.

Grunaður árásaraðili var handtekinn og vistaður í fangahúsi lögreglunnar í Keflavík á meðan rannsókn málsins stóð yfir.
Bílakjarninn
Bílakjarninn