Alvarleg bilun gerði Víkurfréttir á Netinu sambandslausar
Alvarleg bilun í ljósleiðarabúnaði Landsímans gerði það að verkum að lesendur Víkurfrétta á netinu hafa ekki komist inn á vef Víkurfrétta, vf.is síðan kl. 05 í morgun. Ekki tókst að komast í veg fyrir bilunina fyrr en um kl. 14 í dag. Vegna þessa hefur ekki verið hægt að uppfæra fréttir á vefnum á þessu tímabili. Þá hefur tölvupóstsamband einnig legið niðri.Nú virðist netsamband vera að komast í lag og fréttirnar taka að "streyma" aftur út á Netið í rólegheitunum hér suður með sjó.