Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Alþjóðlegur psoriasis dagur 29. október
Miðvikudagur 20. október 2004 kl. 14:03

Alþjóðlegur psoriasis dagur 29. október

Alþjóðlegi psoriasis dagurinn verður haldinn í fyrsta sinn þann 29. október næstkomandi. Tilgangurinn er fyrst og fremst að vekja athygli á sjúkdómnum og fræða bæði fólk með psoriasis og almenning um sjúkdóminn. Heimsdagurinn verður einnig nýttur til þess að kynna þá meðferðarkosti sem í boði eru. Þá verða heilbrigðisyfirvöld víðsvegar um heim hvött til þess að hlúa betur að málefnum fólks með psoriasis.

Í tilefni dagsins mun Bláa Lónið - húðlækningastöð bjóða upp á fjölbreytta dagskrá. Laugardaginn 30. október verður opið hús á milli klukkan 13.00 og 16.00 fyrir þá sem hafa áhuga á að koma og kynna sér starfsemina sem þar fer fram. Klukkan 13.30 mun starfsmaður Bláa Lónsins bjóða upp á skoðunarferð í nýja húðlækningastöð sem mun opna vorið 2005. Fólk með psoraisis og fjölskyldur þeirra fá frían aðgang í heilsulón húðlækningastöðvar. Einnig verður þeim boðið í Gjána, sem er fræðandi upplýsingamiðstöð um íslenska jarðfræði, staðsett í Eldborg, skammt frá húðlækningastöðinni.

Af vef Bláa lónsins
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024