Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Alþjóðadagur kennara
Miðvikudagur 5. október 2016 kl. 06:00

Alþjóðadagur kennara

- haldinn hátíðlegur í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar

Miðvikudagurinn 5. október er Alþjóðadagur kennara. Í tilefni af því mun Tónlistarskóli Reykjanesbæjar bjóða öllum áhugasömum að koma í skólann, að Hjallavegi 2, Reykjanesbæ, þann dag á milli klukkan 17 og 19.
Á neðri hæð skólans fara fram þennan dag á þessum tíma, margs konar samæfingar nemenda undir handleiðslu kennara. Æfingarnar fara fram að þessu sinni fyrir opnum dyrum og er gestum velkomið að tilla sér inn í stofu eða sali og fylgjast með æfingunum. Það sem verður í gangi á neðri hæðinni á þessum tíma er lúðrasveitaræfing, slaghörpu-hópur, rokkhljómsveit, rafgítarkór og söngdeild sem verður með tvo mismunandi hóptíma. Auk þess verða hljóðfæri bjöllukórsins til sýnis og kynningar.
Vonandi sjá sem allra flestir sér fært að kíkja við í Tónlistarskólanum á miðvikudaginn milli klukkan 17 og 19. Hollar veitingar verða í boði í tilefni af Heilsu- og forvarnarviku í Reykjanesbæ, segir í tilkynningu frá skólanum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024