HSS
HSS

Fréttir

Alþjóðabjörgunarsveitin í viðbragðsstöðu
Laugardagur 27. febrúar 2010 kl. 17:18

Alþjóðabjörgunarsveitin í viðbragðsstöðu

Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin, sem hefur aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli, hefur verið sett í viðbragðsstöðu vegna jarðskjálfta í Chile. Þar reið yfir geysiöflugur skjálfti í morgun að íslenskum tíma en skjálftinn mældist 8,8 stig á Richter.


Nokkrir félagar úr Björgunarsveitinni Suðurnes skipa m.a. alþjóðabjörgunarsveitina og þeir eru nú að undirbúa hugsanlega brottför til Chile. Hins vegar hefur ekki borist formleg hjálparbeiðni frá Chile og því er aðeins fylgst með ástandinu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Fyrstu fréttir benda til mun minna mannfalls en á Haítí í janúar. Hins vegar sé erfitt að ná sambandi við þau svæði sem verst urðu úti og því geti fyrstu tölur um mannfall verið mjög skakkar.