Alþingi í dag: Frumvarp um rannsókn á falli sparisjóðanna
Lagt var fram lagafrumvarp á alþingi í dag með þeim tilgangi að sérstök rannsóknarnefnd á vegum Alþingis leiti sannleikans um aðdraganda og orsök rekstrarerfiðleika og gjaldþrots íslenskra sparisjóða. Fjórir þingmenn lögðu fram í dag frumvarp til laga um skipan rannsóknarnefndar er leiti sannleikans um aðdraganda og orsök rekstrarerfiðleika og gjaldþrots íslenskra sparisjóða. Þingmennirnir fjórir eru þau Eygló Harðardóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson frá Framsóknarflokknum ásamt þeim Margréti Tryggvadóttur og Birgittu Jónsdóttur frá Hreyfingunni, en þau eru öll í Suðurkjördæmi.
Nefndinni er ætlað að meta hvort um mistök eða vanrækslu hafi verið að ræða við framkvæmd laga og reglna um starfsemi sparisjóða á Íslandi og eftirlit með henni, og hverjir kunni að bera ábyrgð á því.
Nefndinni er einnig ætlað að varpa sem skýrustu ljósi á aðdraganda og orsakir rekstrarerfiðleika margra íslenskra sparisjóða, sem leiddu m.a. til nauðsynlegrar endurfjármögnunar Sparisjóðsins í Keflavík.
Meta skal starfshætti sparisjóðanna á undanförnum árum og varpa ljósi á hverjar séu helsu orsakir mismunandi árangurs rekstrar þeirra. Meðal annars verði fjármögnun og útlánastefna þeirra skoðuð, eignarhald, aukning stofnfjár, greiðslur arðs, kaup og sala stofnfjár, hlutafélagavæðing þeirra sem og aðrir þættir sem kunna að skipta máli.
Gera skal úttekt á lagaramma og öðru starfsumhverfi sparisjóðanna og bera saman við starfsumhverfi sambærilegra fjármálafyrirtækja í nágrannalöndunum.
Leggja mat á hvernig staðið hafi verið að endurskoðun hjá sparisjóðunum og öðru eftirliti með starfsemi þeirra og kynningu á niðurstöðum þess eftirlits.
Nefndin skuli koma með ábendingar og tillögur að breytingum á lögum, reglum, vinnubrögðum og skipulagi opinberrar stjórnsýslu sem miða að því að gera sparisjóðum kleift að starfa á þeim samfélagslegu og rekstrarlegu forsendum sem þeir voru stofnaðir um.
Einnig er nefndinni ætlað að gera ráðstafanir til þess að hlutaðeigandi yfirvöld fjalli um mál þar sem grunur leikur á um refsiverða háttsemi eða brot á starfsskyldum og gera jafnframt grein fyrir þeim málum í skýrslu til Alþingis.