Almannavarnir vara við slæmri veðurspá
Almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra vekur athygli á viðvörun frá Veðurstofunni vegna slæmrar veðurspár þar sem varað er við norðan og norðvestan 20-25 m/s á Vestfjörðum síðdegis, suðvestanlands undir kvöld og norðanlands á morgun. Íbúar á þessum svæðum eru hvattir til að huga að lausum munum sem geta fokið. Einnig er rétt að vara við því að færð getur spillst með skömmum fyrirvara og þeir sem eru á ferðinni ættu að fylgjast vel með upplýsingum um færð á vegum.
Meðfylgjandi mynd sýnir spákort Veðurstofunnar á miðnætti í kvöld.