Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Almannavarnir skoða afhendingaröryggi raforku á Suðurnesjum
Fimmtudagur 16. maí 2019 kl. 10:43

Almannavarnir skoða afhendingaröryggi raforku á Suðurnesjum

Öryggi dreifikerfis raforku á Suðurnesjum verður ekki tryggt fyrr en tvær flutningslínur fyrir raforku til Suðurnesja verða komnar upp. Þetta kom fram á síðasta fundi Almannavarna Suðurnesja þar sem afhendingaröryggi raforku á Suðurnesjum var til umfjöllunar.
 
Fulltrúar HS Veitna kynntu stöðu afhendingaröryggis rafmagns á Suðurnesjum.  Þeir segja öryggi dreifikerfisins verði ekki tryggt fyrr en tvær flutningslínur rafmagns verði komnar upp. Áhyggjuefnið snýr að Suðurnesjalínu 1, því ef hún dettur út, horfi til vandamála.
 
Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Vogum, fór yfir stöðu undirbúningsvinnu á fundi almannavarna  Landsnets varðandi fyrirhugaða Suðurnesjalínu 2. Stefnt er að því að fá fund Almannavarnanefndarinnar og fulltrúa frá HS Orku.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024