Almannavarnir með ósótta lykla Grindavíkinga
Enn er eitthvað um ósótta lykla sem ganga að íbúðarhúsnæði í Grindavík eftir aðgerðir síðasta vetur við að halda hita á húsum Grindvíkinga eftir náttúruhamfarir. Lyklarnir eru nú í geymslu hjá Almannavörnum.
Til þess að nálgast lyklana þarf að senda póst á [email protected] og verða lyklarnir í kjölfarið afhentir á starfsstöðvum Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra í Reykjavík.

 
	
			

 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				