Almannavarnir fara upp á neyðarstig vegna rofs á afhendingu á heitu vatni á Suðurnesjum
Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum, hafa ákveðið að fara upp á neyðarstig Almannavarna vegna rofs á afhendingu á heitu vatni á Suðurnesjum.
Áfram biðja Almannavarnir almenning á Reykjanesi að spara heitt vatn og rafmagn. Það er mjög mikilvægt og skiptir öllu máli að íbúar á Reykjanesi fylgi þessum leiðbeiningum.
Heitavatnslögnin er rofin sem veldur heitavatnsleysi á Suðurnesjum. Nú er mikilvægt að íbúar og fyrirtæki á Suðurnesjum spari allt rafmagn og heitt vatn.
Miðlunartankar geyma heitt vatn á svæðinu og nú þegar leiðslan er farin er það eina vatnið sem er eftir á svæðinu. Almannavarnir ítreka því mikilvægi þess að íbúar og fyrirtæki spari vatnið. Í markvissum sparnaði endast miðlunartankar væntanlega í 6 til 12 klukkustundir. Miðað við hefðbundna daglega notkun endast tankarnir í 3 til 6 klukkustundir.
Íbúar geta notað rafmagnsofn en Almannavarnir ítreka að hver eign má aðeins notast við einn rafmagnsofn. Rafkerfið þolir ekki meiri notkun. Ef öll setja ofna í gang í einu getur kerfið slegið út. Því er mikilvægt að íbúar fylgi fyrirmælum og noti aðeins einn rafmagnsofn til kyndingar.
Búið er senda sms skilaboð til íbúa á svæðinu með leiðbeiningum að spara heita vatnið.
Á vef HS Veitna eru mikilvæg skilaboð til íbúa á Reykjaness með leiðbeiningum.