Bygg
Bygg

Fréttir

Allt tiltækt slökkvilið í bruna á Brekkustíg
Laugardagur 8. september 2007 kl. 03:31

Allt tiltækt slökkvilið í bruna á Brekkustíg

Allt tiltækt slökkvilið Brunavarna Suðurnesja ásamt lögreglunni á Suðurnesjum var kallað að Brekkustíg 31 í Njarðvík skömmu fyrir klukkan eitt í nótt. Mikill eldur logaði þá á efri hæð og í risi í einni íbúð í húsinu, sem er raðhús með nokkrum íbúðum.

Mjög var óttast að eldurinn færi í þak hússins en þá er auðvelt að missa stjórn á ástandinu. Þak hússins var rofið að hluta til að ganga úr skugga um að glóð væri ekki komin í þakið.

Reykur barst eftir risinu á milli íbúða í húsinu en eldurinn var einangraður við eina íbúð.

Lögrelgan rýmdi allar íbúðir hússins og var fólki boðið húsaskjól á vegum Rauða Krossins. Enginn þáði það og sögðust allir geta komist í húsaskjól hjá vinum og ættingjum.

Slökkvistarfi var lokið á þriðja tímanum en talsverðan tíma tók að reykræsta íbúðirnar. M.a. rauk lengi út um þakglugga og gat á þaki íbúðarinnar þar sem eldurinn kom upp. Um tíma rauk víða úr þakinu og ljóst að reykurinn hefur átt auðvelt með að smjúga á milli íbúða eftir risinu.

Eldsupptök eru óljós þegar þetta er skrifað en lögreglan á Suðurnesjum mun fara með rannsókn. Ljóst er að tjón er umtalsvert.

Mynd: Frá slökkvistarfi í nótt. Ljósmynd:Hilmar Bragi Bárðarson
Bílakjarninn
Bílakjarninn