Fréttir

Allt skólastarf fellur niður í Suðurnesjabæ
Fimmtudagur 8. febrúar 2024 kl. 22:58

Allt skólastarf fellur niður í Suðurnesjabæ

Í ljósi þess að heitt vatn er farið á Suðurnesjum þarf að grípa til lokana víða í starfsemi Suðurnesjabæjar og þar til varalögn kemst í gagnið. Sundlaugum hefur verið lokað og Íþróttamiðstöðvum einnig. Föstudaginn 9. febrúar verður staðan eftirfarandi:

Allt skólastarf í leik- og grunnskólum auk tónlistarskólum fellur niður.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Öll íþróttamannvirki og sundlaugar verða lokuð.

Söfn - verða lokuð

Ráðhús – verða lokuð, hægt að hringja í síma 425-3000 eða senda tölvupóst á netfangið [email protected]


Starfsemi Velferðarsviðs verður með eftirfarandi hætti:

Hefðbundin starfsemi í sérstöku búsetuúrræði að Lækjamótum

Skammtímavistunin Heiðarholt - verður lokuð

Björgin í Reykjanesbæ verður lokuð – opið í Lautinni

Hæfingarstöðin í Reykjanesbæ – verður lokuð

Dagdvöl og félagsstarf aldraðra í Miðhúsum og í Auðarstofu – verður lokuð

Heima- og stuðningsþjónusta verður skert en haldið verður uppi nauðsynlegri þjónustu.