Fréttir

Allt í eðlilegum rekstri hjá HS Orku í Svartsengi
Mynd: Skjáskot úr streymi Ísaks Finnbogasonar.
Sunnudagur 17. mars 2024 kl. 15:10

Allt í eðlilegum rekstri hjá HS Orku í Svartsengi

Allur rekstur HS Orku er með eðlilegum hætti og lagnir óraskaðar en eldgos, sem hófst í Sundhnúksgígaröðinni laust eftir kl. 20 í gærkvöldi, virðist í rénun. Upptökin voru milli Hagafells og Stóra-Skógfells, á svipuðum stað og eldgosið 8. febrúar.

Hraun flæddi í tvær áttir, annars vegar í átt til Grindavíkur og hins vegar í átt að innviðum sem liggja frá orkuverinu í Svartsengi. Hrauntungan úr norðurhluta sprungunnar rann yfir Grindavíkurveg í nótt og um tíma stefndi í að hraunrennslið næði að háspennumöstrum Svartsengislínu og Njarðvíkuræðinni, sem fæðir Reykjanesbæ með heitu vatni frá Svartsengi. Hraunjaðarinn virðist vera að storkna en hann er nú í um 250 metra fjarlægð frá möstrum og lögnum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Búið var að fergja þann hluta Njarðvíkuræðarinnar þar sem talin er mest hætta á að hraun renni en hraunflæðið í gær og nótt var með svipuðu sniði og í febrúargosinu. Einnig hefur Landsnet unnið að mikilvægum vörnum á háspennumöstrum sínum við Svartsengi undanfarnar vikur.