Allt hvítt á Suðurnesjum - Éljagangur í kvöld og á morgun
Það snjóaði hraustlega á Suðurnesjum í nótt og þegar fólk fór á fætur í morgun var allt hvítt. Af Facebook-færslum fólks að dæma fagnar það snjónum sem setur jólalegan blæ á umhverfið á þessum fyrsta sunnudegi í aðventu. Meðfylgjandi mynd var tekin í Njarðvík nú áðan og sýnir bíl á bílastæði sem var eins og falleg rjómaterta á þessum yndislega degi.
Veðurhorfur á Faxaflóa næsta sólarhringinn
Suðaustan 8-13 og snjókoma með köflum, en norðaustan 5-10 og él í kvöld. Norðaustan 10-18 og él á morgun, hvassast nyrst. Frost 1 til 6 stig.
Veðurhorfur næstu daga á landinu:
Á þriðjudag:
Norðaustan 8-13 m/s og él, en 15-18 snjókoma SA-lands. Frost 0 til 8 stig, minnst syðst.
Á miðvikudag:
Norðaustan 8-15 m/s með snjókomu eða slyddu, einkum A-lands. Frostlaust við sjávarsíðuna, en annars vægt frost.
Á fimmtudag:
Norðanátt og dálítil snjókoma N-lands, en annars bjart með köflum. Víða vægt frost.
Á föstudag, laugardag og sunnudag:
Fremur hægar austlægar áttir og skúrir eða él A-til, en annars þurrt að kalla. Hlýnandi veður.