HSS
HSS

Fréttir

Mánudagur 20. nóvember 2000 kl. 03:48

Allt fyrir bílinn

Bílanaust hefur tekið við rekstri Bílabúðarinnar Grófinni 8. Arnar Steinn Sveinbjörnsson, verslunarstjóri segir að vöruúrval muni aukast og þjónustan sömuleiðis. „Við erum með allt fyrir bílinn; ramgeyma, bremsuhluti, pústkerfi, verkfæri, hreinsiefni, rúðuvökva, smurolíur, síur, barnabílstóla og margt fleira. Við sérblöndum lakk og setjum á úðabrúsa og erum með „boddíhluti“ í flestar gerðir bíla. Einnig tökum við að okkur að skipta um rafgeyma og þurrkublöð en fólk hefur verið duglegt við að nýta sér þá þjónustu. Fyrir stærri viðskiptavini sjáum við um að koma vörum til þeirra og leggjum okkur fram við að veita lipra og góða þjónustu. Enda hefur það sýnt sig á þessum stutta tíma að viðskiptavinir okkar kunna að meta það“, segir Arnar Steinn og bætir við að vöruverð sé hið sama og í Reykjavík þannig að fólk þurfi ekki að leyta langt yfir skammt. Þessa dagana eru mörg góð opnunartilboð í gangi í Bílanausti og Arnar Steinn hvetur bæjarbúa til að koma og nýta sér tækifærið. „Við erum t.d. með tvær gerðir af Jacoo barnabílstólum á 3,798 kr. Stærri stólarnir kostuðu áður rúmar 12 þús. kr. og minni gerðin rúmar 7 þús.kr. Fólk ætti ekki að láta tilboðin okkar framhjá sér fara.“ Bílanaust hefur tekið við rekstri Bílabúðarinnar Grófinni 8. Arnar Steinn Sveinbjörnsson, verslunarstjóri segir að vöruúrval muni aukast og þjónustan sömuleiðis. „Við erum með allt fyrir bílinn; ramgeyma, bremsuhluti, pústkerfi, verkfæri, hreinsiefni, rúðuvökva, smurolíur, síur, barnabílstóla og margt fleira. Við sérblöndum lakk og setjum á úðabrúsa og erum með „boddíhluti“ í flestar gerðir bíla. Einnig tökum við að okkur að skipta um rafgeyma og þurrkublöð en fólk hefur verið duglegt við að nýta sér þá þjónustu. Fyrir stærri viðskiptavini sjáum við um að koma vörum til þeirra og leggjum okkur fram við að veita lipra og góða þjónustu. Enda hefur það sýnt sig á þessum stutta tíma að viðskiptavinir okkar kunna að meta það“, segir Arnar Steinn og bætir við að vöruverð sé hið sama og í Reykjavík þannig að fólk þurfi ekki að leyta langt yfir skammt. Þessa dagana eru mörg góð opnunartilboð í gangi í Bílanausti og Arnar Steinn hvetur bæjarbúa til að koma og nýta sér tækifærið. „Við erum t.d. með tvær gerðir af Jacoo barnabílstólum á 3,798 kr. Stærri stólarnir kostuðu áður rúmar 12 þús. kr. og minni gerðin rúmar 7 þús.kr. Fólk ætti ekki að láta tilboðin okkar framhjá sér fara.“
Bílakjarninn
Bílakjarninn