Allt að 30 m/s þvert á Reykjanesbrautina
Í hlýindum sem nú ganga yfir landið getur vindur orðið sérlega hvass sums staðar vestanlands. Mjög hvasst er á Reykjanesbraut þvert á akstursstefnu og er spáð að vindhraðinn verði allt að 30 metrar á sekúndu fram á nótt, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.
Gert er ráð fyrir að það taki að lægja snemma í fyrramálið.