Bygg
Bygg

Fréttir

Allt að 17 stiga hiti í dag
Mánudagur 8. júlí 2002 kl. 09:37

Allt að 17 stiga hiti í dag

Veðurstofan gerir ráð fyrir norðaustlægri átt í dag með 5-10 m/s en hægari vindi á Suður- og Suðvesturlandi. Spáð er björtu veðri með köflum en hætt við síðdegisskúrum. Hiti verður 10 til 17 stig að deginum, hlýjast á Suður- og Vesturlandi.Á miðvikudag og fimmtudag: Norðan og norðaustan 3-10 m/s. Léttskýjað á Suður- og Vesturlandi en annars rigning með köflum, einkum austanlands. Hiti 7 til 18 stig, hlýjast sunnanlands.
Á föstudag: Hæg vestlæg eða breytileg átt. Rigning eða súld norðanlands en skúrir sunnantil. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast sunnanlands.

Á laugardag og sunnudag: Hægar sunnan og suðvestan áttir. Skúrir sunnan- og vestanlands, en annars skýjað með köflum. Hiti 10 til 16 stig.

Gert 08.07.2002 kl. 08:45.
Bílakjarninn
Bílakjarninn