Allt á fullu í Helguvík
Gríðarlegt magn jarðefna hefur verið tekið úr Helguvík á síðustu mánuðum og hefur efnið verið notað í grjótvarnagarða og uppfyllingu í Reykjanesbæ. Fjöldi vinnuvéla er á svæðinu og er umferðin mikil þar sem 28 tonna trukkar keyra fullhlaðnir með gríðarstór björg af svæðinu. Eins og sjá má af þessari ljósmynd hefur svæðið í Helguvík tekið miklum breytingum og ásýnd þess orðin allt önnur en hún var fyrir framkvæmdir.
VF-ljósmynd/JKK.
VF-ljósmynd/JKK.