Mánudagur 9. febrúar 2015 kl. 11:49
Allir skynsamir og spenntir næstu daga
Lögreglan með eftirlit með notkun öryggis- og verndarbúnaðar.
Í dag og næstu daga ætlar Lögreglan á Suðurnesjum að hafa eftirlit með notkun öryggis- og verndarbúnaðar í öllum bæjarfélögum embættisins. Í tilkynningu á Facebook síðu lögreglunnar eru íbúar og vegfarendur hvattir til þess að vera skynsamir og spenna beltin.