Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Allir ökumenn með sitt á hreinu
Þriðjudagur 29. mars 2016 kl. 11:56

Allir ökumenn með sitt á hreinu

Lögreglumenn á Suðurnesjum könnuðu yfir páskahátíðina ökuréttindi leigubifreiðastjóra á bifreiðastæðinu við komusal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Er skemmst frá því að segja að allir voru með sitt á hreinu og höfðu tilskilin ökuréttindi og akstursheimildir í lagi. Kváðust þeir ánægðir með þetta framtak lögreglu.

Sama máli gegndi um þá sem flytja fólk til og frá flugstöðinni í atvinnuskyni. Þegar þeirra réttindi voru könnuð reyndist allt í besta lagi.

Við eftirlit með umferð um flughlað og umhverfis flugstöðina var akstur ökumanna til fyrirmyndar og engin tilefni til afskipta.

Loks var lögregla með eftirlit með skemmtistöðum í umdæminu um páskahátíðina og þar fór allt vel fram.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024