Allir íbúar í Garði taka upp nágrannavörslu

Húsnæði sem stendur autt til lengri tíma getur verið auðvelt skotmark innbrotsþjófa, hægt er að grípa til ýmissa ráðstafana til að draga úr líkum á innbroti. Einnig er gott að geta leitað til nágranna þegar farið er í frí og fá þá til að líta til með húsnæðinu.
Sveitarfélagið Garður hefur ákveðið að taka upp „Nágrannavörslu“ með þátttöku allra íbúa og forsvarsmanna íbúðahúsnæðis í sveitarfélaginu. Þátttakan er öllum íbúum að kostnaðarlausu en allar íbúðir fá 4 merki „Nágrannavörslunnar“ til að setja við hurðir og innganga í hús sín. Þá verður sett um merking við innkomuna í bæinn og við helstu gatnamót í bænum.
Nánar verður greint frá þessu á morgun, mánudag.