Álitlegustu piparmeyjar Suðurnesja!

Við birtum átakanlega lífsreynslusögu Árnýjar Heiðu Árnadóttur sem fjórum sinnum hefur reynt að fermja sjálfsvíg. „Mér er ekki ætlað að deyja strax“, segir hún í einlægu viðtali. Jörundur Guðmundsson segir okkur frá ævintýrum í karabíska hafinu og við tökum hús á okkar manni hjá Íslenskri erfðagreiningu, nuddara fræga fólksins í Kaliforníu, Atla Ingólfssyni á Ítalíu og fleirum. Mannlífsviðburðirnir í blaðinu eru nær óendanlegir. Þar má nefna árshátíðir eins og hjá Fríhöfninni, fermingarafmæli, afmæli aldarinnar í Stapa, Sjávarperluhóf og margt fleira. Einnig förum við utan með Suðurnesjafólki til Prag og skellum okkur á skíði með hressu fólki.
Rúsínan í pylsuendanum er síðan opinberun á því hverjar séu tíu álitlegustu piparmeyjar Suðurnesja. Engin þeirra veit af umfjöllun TVF en við birtum myndir af þeim öllum með umsögn sérfræðinga í málefnum piparmeyja... Spennandi tímarit!
Myndin með fréttinni er eingöngu til skreytingar. Stúlkan á myndinni er ekki á meðal þeirra tíu efstu - en samt á lausu - þannig að það er von á góðu!