Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Algalíf í samstarf um þróun plöntuvarnarefna úr örþörungum
Föstudagur 8. september 2023 kl. 16:59

Algalíf í samstarf um þróun plöntuvarnarefna úr örþörungum

Íslenska líftæknifyrirtækið Algalíf stefnir á framleiðslu náttúrlegra plöntuvarnarefna úr örþörungum í samstarfi við franska líftæknifyrirtækið ImmunRise Biocontrol. Þetta kemur fram í tilkynningu.

1.000 milljarða alþjóðlegur markaður

Varnarefni eru notuð í landbúnaði víða um heim og áætlað er að markaður með þau á heimsvísu velti sem nemur nærri eitt þúsund milljörðum íslenskra króna. Þessi markaður fer ört stækkandi og áætlað er að hann muni tvöfaldast á næstu fimm árum. Stór hluti þeirra efna sem nú eru notuð er kemískur en mikil eftirspurn er eftir náttúrulegum staðgönguefnum. Evrópusambandið styður slíka umbreytingu og stefnir á helmingun á notkun kemískra varnarefna fyrir árið 2030.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Þróunarstyrkur frá Evrópusambandinu

Algalíf og ImmunRise hafa þegar fengið þróunarstyrk úr Eureka Eurostars áætlun Evrópusambandsins sem nemur rúmlega 100 milljónum íslenskra króna, til að þróa ný og umhverfisvæn plöntuvarnarefni úr örþörungum. Frumtilraunir síðustu missera lofa góðu og mögulegt að innan fárra ára rísi ný örþörungaverksmiðja á Íslandi sem hluti þessa verkefnis.

Eitt öflugasta örþörungafyrirtæki Evrópu

Algalíf (www.algalif.com) er nú þegar leiðandi fyrirtæki í framleiðslu örþörunga á heimsvísu en það er stærsti framleiðandi Evrópu á fæðubótaefninu astaxanthín. Unnið er að lokauppsetningu nýrrar hátækni örþörungaverksmiðju fyrirtækisins á Ásbrú í Reykjanesbæ. Þegar hún hefur náð fullum afköstum á næsta ári mun framleiðslan verða rúmlega þreföld miðað við það sem nú er. Þar með verður Algalíf stærsti framleiðandi í heimi á náttúrulegu astaxanthíni í samtals 13.300 m² húsnæði.

Forstjóri Algalífs er Orri Björnsson og starfsmenn eru um 70.

Franskur frumkvöðull í rannsóknum

ImmunRise Biocontrol (www.immunrisebiocontrol.fr) er franskt nýsköpunarfyrirtæki sem sérhæfir sig í rannsóknum og þróun lífvirkra varnarefna úr þörungum. Fyrstu afurðir þess eru umhverfisvæn sveppavarnarefni fyrir landbúnað sem nú eru í skráningar- og vottunarferli hjá viðeigandi yfirvöldum í Evrópusambandinu og Bandaríkjunum.