Alelda bíll á Ásbrú
Eldur kviknaði í bíl aðfaranótt mánudags á bílastæði við fjölbýlishús á Ásbrú. Nágrannar vöknuðu við sprengingar og hávaða og voru lögregla og slökkvilið kölluð á staðinn. Bílinn var alelda en samkvæmt sjónarvotti þá gekk vel að slökkva eldinn sem var talsverður. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum er talið að um íkveikju hafi verið að ræða.