Aldrei unnið meira í landvinnslum Þorbjarnar Fiskaness hf.

Af einstökum afurðaflokkum voru verðmæti frystra afurða 1.9 milljarðar króna, saltfiskafurða liðlega 1200 milljónir króna og verðmæti ferskra afurða um kr. 800 milljónir króna.
Þorskafurðir voru verðmætastar ef litið er á einstakar tegundir, bæði frystar, ferskar og saltaðar eða um 2 milljarðar króna.
Mikilvægustu markaðslönd fyrirtækisins eru eins og áður Bretland, Bandaríkin, Spánn og Japan.
Verð á erlendum mörkuðum hækkaði nokkuð á árinu í erlendri mynt í einstaka afurðaflokkum, en þar sem íslenska krónan styrktist verulega á árinu náðu verðhækkanir erlendis ekki að auka verðmæti afurðanna í krónum talið.
Af vef Þorbjarnar Fiskaness