Albert hlaut riddarakross
	Albert Albertsson, fyrrverandi aðstoðarforstjóri Hitaveitu Suðurnesja, hlaut við hátíðlega athöfn á Bessastöðum á nýársdag riddarakross fyrir framlag á vettvangi jarðhitanýtingar
	Forseti Íslands sæmdi á nýársdag tólf Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Þeir eru: 
	1. Albert Albertsson fyrrverandi aðstoðarforstjóri Hitaveitu Suðurnesja, Reykjanesbæ, riddarakross fyrir framlag á vettvangi jarðhitanýtingar 
	2. Álfrún Gunnlaugsdóttir rithöfundur og fyrrverandi prófessor, Seltjarnarnesi, riddarakross fyrir framlag til íslenskra bókmennta og kennslu bókmennta á háskólastigi 
	3. Brynhildur Guðjónsdóttir leikkona, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar leiklistar 
	4. Gunnar V. Andrésson ljósmyndari, Mosfellsbæ, riddarakross fyrir störf á vettvangi íslenska fjölmiðla 
	5. Halldóra Björnsdóttir íþróttafræðingur, Mosfellsbæ, riddarakross fyrir framlag til heilsuverndar og lýðheilsu 
	6. Haukur Ágústsson fyrrverandi skólastjóri, Akureyri, riddarakross fyrir framlag á vettvangi skólamála og fjarkennslu 
	7. Lárus Blöndal forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Garðabæ, riddarakross fyrir störf í þágu íþróttahreyfingarinnar 
	8. Ólafur Dýrmundsson fyrrverandi ráðunautur, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi íslensks landbúnaðar 
	9. Ólöf Nordal myndlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar myndlistar 
	10. Sigfús Kristinsson trésmíðameistari, Selfossi, riddarakross fyrir framlag til atvinnulífs og iðnmennta í heimabyggð 
	11. Sigþrúður Guðmundsdóttir forstöðukona Kvennaathvarfs, Reykjavík, riddarakross fyrir störf að velferð og öryggi kvenna 
	12. Vilborg Oddsdóttir félagsráðgjafi, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til samhjálpar og baráttu gegn fátækt í samfélaginu
				
	
				

 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				