Álagningarskrá aðgengileg í Ráðhúsi Reykjanesbæjar
Álagningarskrá 2016 fyrir íbúa Reykjanesbæjar er nú aðgengileg í Ráðhúsinu við Tjarnargötu. Þeir sem óska eftir að fá að skoða skrána þurfa að hafa samband við þjónustufulltrúa í þjónustuveri á opnunartíma, sem er virka daga frá klukkan 9:00 til 16:00.
Álagningarskráin verður aðgengileg til 14. júlí.