Akstursæfingar á varnarsvæðinu í Keflavík
Undanfarin ár hefur töluvert borið á kappakstri á götum og vegum landsins og er skortur á öruggu akstursíþróttasvæði talið eigi sinn þátt í því. Umferðarstofa hefur undanfarið í samstarfi við FÍB og LÍA átt fundi með áhugahópi um akstursíþróttir og hafa þar komið fram óskir um úrbætur í þessum efnum.
Í tilefni af alþjóðlegu umferðaöryggisvikunni hefur Umferðarstofa fengið leyfi frá Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar til að setja upp æfingasvæði á gamla varnarsvæðinu og mun fyrsta æfingin verða laugardaginn 28. apríl. Sett verður upp aðstaða bæði fyrir mótorhjól og bíla en nánari upplýsingar um þetta má finna á heimasíðum live2cruize, bmwkrafts og LÍA.
Mæting fyrir þátttakendur er klukkan 10.00 en brautin verður opnuð fyrir akstur klukkan 12:00. Á meðfylgjandi mynd má sjá hvar þetta fer fram.
Þetta verkefni er gert með því skilyrði að akstursíþróttamenn og þátttakendur leggi því lið að uppræta kappakstur úr almennri umferð. Verið er að móta reglur sem miða að því að þeir sem staðnir eru aðalvarlegum umferðalagabrotum séu útilokaðir frá mögulegum keppnum og aðgangi að svæðinu í framtíðinni. Þær hugmyndir hafa fengið góðar viðtökur meðal forsvarsmanna akstursíþróttafélaga og samtaka.
Umferðastofa og lögregla hafa sett þau skilyrði að akstursæfingar sem þessar séu samkvæmt alþjóðareglum um akstursíþróttir og -æfingar FIA, alþjóðasamtaka akstursíþróttafélaga, og því hefur LÍA, sem að er aðila að FIA, verið falið að annast rekstur og skipulagningu
akstursæfinganna á laugardag. Með þessu teljum við að verið sé að koma til móts við þarfir þessa hóps og mikla eftirspurn þeirra eftir öruggu akstursíþróttasvæði með því skilyrði að þau leggi sitt að mörkum til að uppræta kappakstur úr almennri umferð. Framhaldið ræðst af því að farið sé að þeim skilyrðum.