Bygg
Bygg

Fréttir

Áhyggjur af þróun umræðunnar um málefni flóttafólks í samfélaginu
Mánudagur 25. september 2023 kl. 06:02

Áhyggjur af þróun umræðunnar um málefni flóttafólks í samfélaginu

„Velferðarráð hefur áhyggjur af þróun umræðunnar um málefni flóttafólks í samfélaginu og leggur áherslu á mikilvægi þess að sýna hvert öðru gagnkvæma virðingu. Í fjölbreytileikanum felst kraftur sem getur byggt upp gefandi og fallegt samfélag, öllum til heilla. Saman þurfum við að sýna skilning, eiga samtalið og draga úr fordómum gagnvart ákveðnum samfélagshópum, leita lausna og finna samstöðuna sem byggir upp þann kraft sem Reykjanesbær stendur fyrir,“ segir í afgreiðslu velferðarráðs á síðasta fundi ráðsins.

Samningur félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins, Fjölmenningarseturs og Reykjanesbæjar um samræmda móttöku flóttafólks rennur út 31. desember 2023. Hera Ósk Einarsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs, gerði grein fyrir málinu á fundinum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Velferðarráð Reykjanesbæjar leggur áherslu á að við gerð nýs samnings um samræmda móttöku verði stefnt að því að umfang samningsins verði viðráðanlegt fyrir innviði Reykjanesbæjar og vísar þar til bókunar á fundi ráðsins 18. janúar 2023. Auk þess telur velferðarráð mikilvægt að gert verði ráð fyrir fjármagni vegna innviðakostnaðar, svo sem menntunar og frístundastarfs flóttabarna, almenningssamgangna, heilbrigðisþjónustu og löggæslu svo dæmi séu tekin.