Bygg
Bygg

Fréttir

Áhyggjur af milljarða framkvæmd án þess að farið verði í greiningarvinnu
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
föstudaginn 13. nóvember 2020 kl. 06:36

Áhyggjur af milljarða framkvæmd án þess að farið verði í greiningarvinnu

„Við í minnihlutanum höfum áhyggjur af milljarða framkvæmd án þess að farið verði í greiningarvinnu og teljum að jafnt stórt verkefni eins og áfangi 2 er við Stapaskóla þá þurfi að velta öllum möguleikum á ódýrari útfærslum án þess að það komi niður á gæðum,“ segir í bókun sem Margrét Þórarinsdóttir, Miðflokki, lagði fram fyrir hönd bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins á síðasta fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar.

„Ég vil undirstrika að við erum hlynnt þessari framkvæmd og gerum okkur grein fyrir nauðsyn hennar en undirbúningsvinnan þarf að vera betri. Við höfum lagt fram bókun í þessu máli á fyrri stigum. Við leggjum bókunina fram aftur og óbreytta,“ segir Margrét í bókuninni sem Margrét Sanders (D), Baldur Guðmundsson (D) og Anna Sigríður Jóhannesdóttir (D) skrifa undir með henni.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Bókunin sem lögð fram á bæjarstjórnarfundi 20. október 2020 og var lögð fram aftur:

„Fyrsti áfangi Stapaskóla hefur nú verið tekinn í notkun og þykir byggingin afar glæsileg enda mun dýrari en sambærilegar byggingar.

Áfangi 2 snýr að byggingu íþróttaaðstöðu og upphafleg greining tók mið af þörfum skólabarna þar sem kennslulaug og einfaldur íþróttasalur myndi duga. Á síðari stigum var viðruð sú hugmynd að íþróttasalur nýttist sem löglegur körfuknattleiksvöllur og í sumar var ræddur sá möguleiki að setja upp aðstöðu fyrir rúmlega 1.000 áhorfendur og sundlaug yrði einnig stækkuð. Á síðasta bæjarráðsfundi voru lagðar fram skissur þar sem nokkrir valkostir voru kynntir ásamt grófri kostnaðaráætlun. Einföld útfærsla mun kosta rúman milljarð en ef farið yrði alla leið þá gæti kostnaður nálgast tvo milljarða.

Við undirrituð treystum okkur ekki til að styðja auknar fjárfestingar um nærri milljarð króna án þess að frekari greiningarvinna fari fram. Í greiningunni komi fram hvernig íþróttahúsið og sundlaug muni nýtast í náinni framtíð, hvaða íþróttagreinar og félög myndu nota aðstöðuna og hvort það nýtist einnig til æfinga, hvort bílastæði séu nægjanleg þegar kappleikir standa yfir, hvort sundlaugin verði notuð til æfinga eða hvort opið verði fyrir almenning fram eftir kvöldi og fleira sem skiptir máli í þarfagreiningu. Nú þegar gróf kostnaðaráætlun hefur verið kynnt er nauðsynlegt að rýna þarfirnar áður en lengra er haldið. Við hönnunarvinnu verði leitast við að velta upp öllum möguleikum á ódýrari útfærslum án þess að það komi niður á gæðum.“

Margrét Sanders (D), Baldur Guðmundsson (D) Anna Sigríður Jóhannesdóttir (D) og Margrét Þórarinsdóttir (M).