Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Áhugaverð sýning um Betri bæ
Mánudagur 24. nóvember 2003 kl. 11:33

Áhugaverð sýning um Betri bæ

Sýningin Betri bær opnaði sl. laugardag í Kjarna að Hafnargötu 57 í Keflavík. Það er  Reykjanesbær  í samvinnu við Arkitektastofu Suðurnesja, Upplýsingamiðstöð Reykjaness, Vegagerðina og samtökin Betri bæ, sem standa að sýningu á hönnun og hugmyndum að betri bæ í göngugötunni í Kjarna. Sýningunni lýkur sunnudaginn 30. nóvember.
Tilgangur sýningarinnar er hugvekja um betri bæ en á sýningunni verður settur upp hugmyndabanki þar sem allir eru hvattir til að koma með hugmyndir og leggja þar með sitt af mörkum í uppbyggingu bæjarins. Sýningin er mjög myndræn að sögn Bjarna Marteinssonar, arkitekts. Breytingar á bæjarfélaginu verða sýndar með myndum fyrir og eftir breytingar. Þá verður framtíðarsýn bæjarins sett fram á myndrænan hátt.
Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir í Reykjanesbæ á undanförnum misserum og má þar nefna endurbyggingu Hafnargötu, aðkomu að bæjarfélaginu sem og uppfyllingu við Ægisgötu, endurbætur á Gamla bænum og umhverfi Duushúsa. Tvöföldun Reykjanesbrautar og tengingar bæjarins við hana skiptir höfuðmáli þegar til framtíðar er litið og síðast en ekki síst samband bæjarbúa við allar þær náttúruperlur sem eru nánast í göngufæri.
Ýmsar hugmyndir eru fylgifiskar slíkra framkvæmda, sumar er búið að ákveða en aðrar eru á hugmyndastigi. Sýningin gefur íbúum kost á að leggja inn sínar eigin hugmyndir og taka þátt í mótun síns bæjarfélags.
Á myndum frá Vegagerðinni verða tengingar nýrrar tvöfaldrar Reykjanesbrautar við byggðina í Reykjanesbæ sýndar. Sýnt er á myndrænan hátt hvernig bærinn er að taka breytingum, allt frá því komið er að bænum við Innri Njarðvík og allt að DUUS-húsum í Grófinni.
Útivistarfólk ætti einnig að leggja leið sína á sýninguna því hægt verður að fá gefnar göngulýsingar á Reykjanesi, auk þess sem sýndar verða gamlar þjóðleiðir, auk styttri sem lengri gönguleiða.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024