HSS
HSS

Fréttir

Áhugaljósmyndarar á Suðurnesjum til rannsóknar
Laugardagur 23. október 2010 kl. 14:05

Áhugaljósmyndarar á Suðurnesjum til rannsóknar

Einstaklingar á Suðurnesjum sem taka að sér ljósmyndun gegn gjaldi, en hafa ekki menntun til að starfa sem ljósmyndarar, eru nú til skoðunar hjá opinberum aðilum, samkvæmt heimildum Víkurfrétta.

Í vikunni féllu dómar vegna brota á iðnaðarlögum þar sem aðilar ráku ljósmyndastofur án þess að hafa til þess tilskilin leyfi. Beðið er eftir dómsniðurstöðu í fleiri málum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Áhugaljósmyndarar reka starfsemi sína í nokkurs konar neðanjarðarhagkerfi og skila ekki sköttum eða öðrum gjöldum af vinnu sinni, segir talsmaður atvinnuljósmyndara í samtali við Víkurfréttir.

Atvinnuljósmyndarar hafa fundið fyrir því að aðilar hafa komið inn í starfsgreinina og starfa þar með ólögmætum hætti.

Ljósmyndun er lögvernduð iðngrein og því er áhugaljósmyndurum óheimilt að stunda þann atvinnurekstur.

Myndin er samsett.