Áhrif hryðjuverkjasprenginga sýnd á Reykjanesi

Að sögn Adrians King sprengjusérfræðings hjá Landhelgisgæslunni voru nokkrar sprengjur sprengdar til að sýna eyðingarmátt mismunandi sprengiefnis sem notað er í heimatilbúnar sprengjur, þ.m.t.
hryðjuverkasprengjur. Einnig var ný sérhönnuð bifreið sprengjudeildar Landhelgisgæslunnar sýnd og vélmenni sem danski landherinn gaf Landhelgisgæslunni í fyrra.
Vélmennið verður til sýnis í Smáralind föstudaginn 11. febrúar næstkomandi á 112-deginum þar sem búnaður viðbragðsaðila í landinu verður sýndur. Þar verða einnig þyrla Landhelgisgæslunnar og sérútbúna bifreið sprengjudeildarinnar. Sýningin verður á bílaplaninu við Smárabíó klukkan 15-18.
Á meðfylgjandi mynd sjást leiðbeinendur og þátttakendur á námskeiðinu sem haldið var fyrir lögregluna í Reykjavík fyrir framan sérútbúnu bifreið sprengjudeildarinnar og vélmennið í forgrunni. Myndasmiður var Jónas Þorvaldsson sprengjusérfræðingur hjá Landhelgisgæslunni.