Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Áhersla á að viðhalda lifandi götuhliðum á Hafnargötu
Föstudagur 3. mars 2023 kl. 07:15

Áhersla á að viðhalda lifandi götuhliðum á Hafnargötu

Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur öðru sinni hafnað erindi Eignakaupa ehf. um heimild til að minnka verslunarrýmið á jarðhæð við Hafnargötu 23 og breyta því í íbúð. Fyrirtækið óskaði eftir endurupptöku málsins 19. desember sl. þar sem fyrra erindi var ítrekað. Erindinu var hafnað vegna þess að breyting er ekki talin styðja við þróun Hafnargötu.

Í afgreiðslu umhverfis- og skipulagsráðs þar sem vísað er í greinargerð aðalskipulags Reykjanesbæjar 2015–2030, kemur fram um svæði M2: „Hafnargatan hefur verið aðalmiðbæjargata bæjarins. Þróunarmöguleikar líflegs miðbæjarumhverfis eru góðir. Lögð er áhersla á að styrkja stoðir smá- og fagverslana og veitingastaða.“ Sú stefna sem þarna er mörkuð er ítrekuð við endurskoðun aðalskipulags, þar er sett inn svohljóðandi ákvæði: „Lögð er áhersla á að viðhalda lifandi götuhliðum með innsýn í verslunar- og þjónusturými. Ekki er heimilt að breyta atvinnuhúsnæði á jarðhæð í íbúðarhúsnæði.“ Skipulagsáætlanir við götuna sem hafa verið samþykktar síðustu ár s.s. Hafnargata 12 og Hafnargata 22–28 styðja við þessa stefnu. Í vinnslu er deiliskipulag fyrir Hafnargötu fyrir reit sem markast af lóðum nr. 15 að nr. 41. Áætlað er að það skipulag komi til afgreiðslu á vormánuðum en þar verður m.a. nánar skilgreind nýting rýma á jarðhæð húsa við götuna.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024