Ágætt veður sunnan til
Á Garðskaga voru NNA 13 klukkan klukkan 9 og hiti rétt rúm 9 stig
Klukkan 6 í morgun var norðlæg átt, yfirleitt 5-10 m/s. Skýjað og súld á Norður- og Austurlandi en annars skýjað með köflum. Hiti 4 til 11 stig, svalast á Gjögri en hlýjast á Fagurhólsmýri.
Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Norðan 3-10 m/s. Skýjað með köflum Hiti 8 til 14 stig.
Veðurhorfur á landinu til kl. 18 á morgun:
Norðan og norðvestan 5-13 m/s, hvassast á annesjum vestantil síðdegis. Víða rigning eða súld á Norður- og Austurlandi en skýjað með köflum og þurrt sunnan- og suðvestanlands. Svipað veður á morgun. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast í uppsveitum suðvestanlands.