Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Ágætis veður í dag
Föstudagur 22. febrúar 2008 kl. 09:18

Ágætis veður í dag

Fremur hæg vestlæg eða breytileg átt. en vestan strekkingur með suðurströndinni. Suðvestan 8-15 vestantil síðdegis en lægir í kvöld. Él sunnan- og vestanlands en annars léttskýjað. Norðaustan 5-15 um hádegi morgun, hvassast og slydda eða snjókoma suðaustanlands. Hiti í kringum frostmark við sjóinn sunnanlands, en frost 1 til 10 gráður annars staðar.

Faxaflói
Vestan 3-8 en suðvestan 8-15 síðdegis. Lægir í kvöld og nótt. Norðan 3-8 á morgun. Éljagangur fram á nótt en síðan úrkomulaust að kalla. Frostlaust við sjóinn en annars 0 til 5 stiga frost.

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Vestan 5-8 m/s en 10-13 um tíma síðdegis. Él. Hægviðri í nótt. Norðvestan gola á morgun og stöku él. Hiti við frostmark.


Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á sunnudag:
Suðvestlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s og stöku él, en bjartviðri austanlands. Frost 0 til 7 stig.

Á mánudag:
Gengur í austan og norðaustan 13-20 m/s sunnan- og vestanlands, en hægari norðaustantil. Slydda eða snjókoma sunnan- og austantil á landinu þegar líður á daginn, en úrkomulítið annars staðar. Hiti breytist lítið.

Á þriðjudag:
Norðaustan 10-18 og snjókoma eða él víða um land. Frost 0 til 5 stig, en hiti 0 til 4 stig á láglendi sunnan- og austantil.

Á miðvikudag:
Austlæg eða breytileg átt, snjókoma sunnan- og vestanlands en annars él. Frost 0 til 5 stig.

Á fimmtudag:
Norðaustan átt og él, en þurrt og bjart suðvestanlands. Víða talsvert frost.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024