Ágætis veður í dag
Samkvæmt spá Veðurstofu Íslands í dag er gert ráð fyrir norðaustlægri átt, 5-10 m/s og dálítilli rigningu með köflum, en hægari austanlands. Suðaustan 3-8 og skúrir sunnanlands er líður á daginn. Norðaustan 5-10 og rigning á Vestfjörðum á morgun, en annars hægviðri og smá skúrir. Hiti víða 10 til 15 stig að deginum.