Ágætis veður í dag
Veðurstofan gerir ráð fyrir austan- og suðaustanátt, 8-13 m/s, en víða 13-18 sunnan- og suðvestanlands. Lægir með kvöldinu. Suðaustan 5-10 á morgun. Skýjað og þurrt að mestu norðanlands, en annars súld eða rigning með köflum. Hiti víða 10 til 15 stig að deginum, en heldur svalara vestanlands á morgun.