Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Aftur takmarkanir á Keflavíkurflugvelli í nótt
Flugvél Icelandair undirbýr flugtak frá Keflavíkurflugvelli á öðrum tímanum síðustu nótt. VF-mynd: Hilmar Bragi
Fimmtudagur 26. maí 2016 kl. 19:03

Aftur takmarkanir á Keflavíkurflugvelli í nótt

Vegna yfirvinnubanns flugumferðarstjóra verður þjónusta á Keflavíkurflugvelli aftur takmörkuð við sjúkra- og neyðarflug frá 02:00 í nótt til 07:00 í fyrramálið. Ástæðan er að tveir flugumferðarstjórar sem áttu að vera á vaktinni í nótt eru veikir og vegna yfirvinnubanns fást ekki flugumferðarstjórar til afleysinga. Á meðan á takmörkuninni stendur eru 16 flugvélar áætlaðar til komu frá Norður-Ameríku og átta til brottfarar til Evrópu.

Félag íslenskra flugumferðarstjóra (FÍF) og Samtök Atvinnulífsins (SA) fyrir hönd Isavia standa nú í kjaraviðræðum og hefur þeim verið vísað til ríkissáttasemjara. Viðræður hafa staðið yfir frá því í nóvember en síðasti fundur var haldinn 20. maí síðastliðinn. Ríkissáttasemjari hefur ekki boðað til næsta fundar í viðræðunum.

Yfirvinnubann FÍF hefur staðið yfir frá 6. apríl.

Farþegar sem eiga bókað flug á þessum tíma eru hvattir til að fylgjast með flugáætlunum á www.kefairport.is eða vef síns flugfélags.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024