Fréttir

Afrekslína í boði í Fjölbrautaskóla Suðurnesja
Knattspyrnuhópurinn á afrekslínu FS með Frey landsliðsþjálfara.
Fimmtudagur 23. október 2014 kl. 07:16

Afrekslína í boði í Fjölbrautaskóla Suðurnesja

Í Fjölbrautaskóla Suðurnesja er nú boðið upp á afreksíþróttalínu þriðja veturinn í röð. Afreksíþróttalínan er fyrir nemendur sem vilja stunda sína íþrótt með álagi afreksíþróttamanna, samhliða krefjandi bóknámi. Á dögunum fékk knattspyrnufólkið góða heimsókn en þá kom Freyr Alexandersson, þjálfari kvennalandsliðsins og meistaraflokks karla hjá Leikni, í heimsókn og stýrði æfingu.  Áhersla hefur verið lögð á að fá gestaþjálfara á afreksíþróttalínunni og einnig hafa gestir verið með fyrirlestra um ýmis efni.

Hópurinn hittist fyrst á morgnana fjóra daga vikunnar en byrjar svo í hefðbundnum kennslustundum kl. 10:00. Á þessari önn eru 34 nemendur sem taka þátt.  Þar af eru 25 í knattspyrnu og 9 í bardagaíþróttum, þ.e. taekwondo og hnefaleikum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Þess má geta að fimm knattspyrnumenn sem hafa verið á afreksíþróttalínunni léku með U-19 ára landsliði Íslands í undankeppni EM í Króatíu þeir Sindri Kristinn Ólafsson, Ari Már Andrésson, Ari Steinn Guðmundsson og Aron Freyr Róbertsson.  Sá fimmti er svo fyrirliði landsliðsins, Keflvíkingurinn Samúel Kári Friðjónsson, sem nú leikur sem atvinnumaður með Reading í Englandi.

Allur hópurinn ásamt þjálfurum.