MSS námskeið haust 2026
MSS námskeið haust 2026

Fréttir

Áframhaldandi landris í Svartsengi
Þriðjudagur 3. júní 2025 kl. 14:49

Áframhaldandi landris í Svartsengi

Landris og kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi. Þó heldur áfram að draga jafnt og þétt úr hraða kvikusöfnunarinnar sé miðað við hraðann í apríl og fyrri hluta maí. Ef kvikusöfnun heldur áfram á svipuðum hraða og undanfarnar vikur má áfram gera ráð fyrir því að líkur á kvikuhlaupi eða eldgosi fari að aukast þegar líða fer á haustið. Breytingar á hraða landriss, og þar með kvikusöfnunar undir Svartsengi, geta þó haft áhrif á þetta mat. Þetta kemur fram í tilkynningu Veðurstofu Íslands.

Undanfarna hafa daga hafa mælst á bilinu 10 til 20 smáskjálftar á hverjum degi á svæðinu í kringum kvikuganginn sem myndaðist þann 1. apríl 2025. Jafnt og þétt hefur dregið úr virkninni síðustu vikur.

Skjálftarnir eru flestir í tveimur þyrpingum annars vegar sunnarlega á kvikuganginum nærri Grindavík og hinsvegar á  svæðinu milli Sundhnúks og Stóra Skógfell. Einnig mælast stöku skjálftar við nyrðri enda gangsins norðan við Keili.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Hættumat hefur verið uppfært og helst óbreytt og gildir til 18. júní að öllu óbreyttu.

2025-06-03_haettumatskort_VI

Bílakjarninn
Bílakjarninn