Bragi Guðmundsson - Báruklöpp
Bragi Guðmundsson - Báruklöpp

Fréttir

Áframhaldandi landris í Svartsengi
Miðvikudagur 21. maí 2025 kl. 07:08

Áframhaldandi landris í Svartsengi

Áframhaldandi landris mælist í Svartsengi, sem bendir til áframhaldandi kvikusöfnunar á svæðinu. Ef hraði landrissins helst svipaður og hann hefur verið undanfarnar vikur, má ætla að líkur á kvikuhlaupi eða eldgosi fari að aukast þegar líða fer á haustið. Breytingar á hraða landriss, og þar með kvikusöfnunar undir Svartsengi, geta þó haft áhrif á þetta mat. 

Vísindamenn Veðurstofunnar halda áfram að endurskoða mögulega sviðsmyndir á þróun kvikusöfnunar í Svartsengi, segir í tilkynningu Veðurstofunnar.  

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona

Jarðskjálftavirkni við kvikuganginn, sem myndaðist 1. apríl, heldur áfram að dvína. Mest hefur virknin verið syðst í ganginum, en hún hefur minnkað jafnt og þétt á undanförnum dögum. Skjálftavirkni á svæðinu við Fagradalsfjall hefur einnig farið minnkandi.  Í gær, þriðjudag, urðu þó nokkrir jarðskjálftar við Sundhnú.

Hættumat hefur verið uppfært og helst óbreytt og gildir til 3.júní að öllu óbreyttu.

 2025-05-20_haettumatskort_VI