Áframhaldandi fjölgun farþega um Flugstöð Leifs Eiríkssonar
 -Besti janúarmánuður frá upphafi mælinga
-Besti janúarmánuður frá upphafi mælinga  
Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um tæp 16% í janúar miðað við sama tíma í fyrra, úr tæplega 74 þúsund farþegum árið 2004 í tæpa 86 þúsund farþega nú. Fjölgun farþega til og frá Íslandi nemur tæpum 14% milli ára og farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgar um tæp 24%.   
Farþegafjöldi í janúarmánuði hefur ekki verið svo mikill frá því mælingar hófust.
Loftmynd: Oddgeir Karlsson


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				