Áfram rok og rigning

Veðurhorfur á landinu næsta sólarhring:
Austan- og suðaustanátt, víða 15-20 m/s suðvestantil á landinu, en 8-15 annars. Rigning eða skúrir, en úrkomulítið á Vestfjörðum og á Norðurlandi. Dregur lítið eitt úr vindi og úrkomu seint í dag. Austlæg átt á morgun, 10-15 m/s við suðurströndina og á annesjum norðantil, en talsvert hægari inn til landsins. Rigning suðaustan- og austanlands, en annars skýjað með köflum og stöku skúrir, einkum síðdegis. Hiti yfirleitt 3 til 8 stig.