Áfram rigning eða súld
Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Suðaustan 5-10 m/s og rigning eða súld. Hiti 11 til 16 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á föstudag:
Austlæg átt, 5-13 m/s, hvassast syðst. Skýjað og þurrt að mestu norðaustanlands, en annars súld eða rigning með köflum. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast inn til landsins fyrir norðan.
Á laugardag og sunnudag:
Norðaustlæg eða breytileg átt, 5-10 m/s og víða súld eða skúrir, en yfirleitt þurrt og bjart suðvestan- og vestanlands. Áfram milt í veðri, en hiti 6 til 10 stig við N-ströndina.
Á mánudag og þriðjudag:
Útlit fyrir norðlæga eða breytilega átt. Skýjað með köflum og lítilsháttar væta á stöku stað. Heldur kólnandi veður.
Mynd: Veðurkortið til kl. 12 á hádegi í dag.