Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Áfram rigning eða súld
Miðvikudagur 7. júní 2006 kl. 08:59

Áfram rigning eða súld

Á Keflavíkurflugvelli voru SA 11 og rigning klukkan 6 í morgun, hiti 7,9 stig. Á Garðskagavita einnig SA 11 klukkan 8 og hiti 9,4 stig.

Suðlæg átt var á landinu klukkan 6 í morgun, víða 5-10m/s, en suðaustan 8-13 suðvestantil. Rigning eða súld um landið sunnan- og vestanvert, en annars skýjað að mestu og þurrt að kalla. Hiti var 6 til 12 stig, hlýjast á Norður- og Austurlandi.

Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Sunnan og suðaustan 8-13 m/s og rigning eða súld, en suðvestan 5-10 og skúrir síðdegis. Suðlægari á morgun. Hiti 7 til 12 stig.

Veðurhorfur á landinu til kl. 18 á morgun:
Sunnan og suðaustan 8-15 m/s og rigning eða súld vestan- og sunnantil, en hægari og skýjað norðaustan- og austanlands og úrkomulítið fram eftir degi. Snýst í suðvestan 5-13 síðdegis með skúrum vestanlands, en léttir smám saman til norðanlands og austan síðdegis og í kvöld. Hægari sunnanátt á morgun, en annars svipað veður. Hiti 7 til 18 stig, hlýjast um landið norðaustanvert.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024